Er ekki komin tími til að játa eitt fyrir ykkur… Allavega þeim sem ekki vita það nú þegar.
Þessi litla vera sem ég kalla oft laumufarþegann er 13 vikna og 3 daga. Settur dagur er 5. desember en ég segi að laumufarþeginn komi 30. nóvember. Því eins og glöggir lesendur fatta eru strákarnir fæddir 30. september og 30. október.
Svo langar mig líka að óska Önnu Þóru og Stebba til hamingju með tvíburana sem fæddust á miðvikudaginn þær eru svo sætar.
Hafrún Ásta ekki alveg kona einsömul…
Til hamingju!!!! Það fer ekki öllum konum vel að vera óléttar, en þú ert ein af fáum útvöldum 😉 Bíð spennt eftir að fá að knúsa þig og „laumufarþegann“ 😉
Hjartanlega til hamingju með bumbubúann !!
Kannski að laumufarþeginn komi bara þann 28.11 en það er sko afmælisdagurinn minn 😉
BestuKveðjur
Til hamingju elskan…mig var náttúrulega búið að dreyma fyrir þessu…NOKKRUM SINNUM.
Nú er bara mest spennó að vita hvort kynið það verður!
kossar og bumbuknús
Innilega til hamingju með laumufarþegann!!!
Það er nú aldeilis. Til hamingju með litla laumufarþegan. Skildi þetta vera dömulega stelpan sem þú hefur beðið eftir?
Innilega til hamingju með litla bumbubúann. Vona að allt gangi vel.
Kveðja,
Edda
Ohh, til hamingju, frábært að heyra! Allt er þá þrennt er …ekki satt??;) Kannski þú komir bara með fleiri jafnvel:)
Kv.Kristín og co,
hehe Kristín mín held ég klári þennan pakka og svo má hugsa málið eftir það… hihi
Elsku Hafrún og Siggi,
Til hamingju enn og aftur. Æðislegt að heyra það. Já, vonandi kemur hún/hann 30. nóvember. En þótt að ég voni að ég fái hana/hann í afmælisgjöf. :):):)