Já ég viðurkenni það alveg að ég er lélegur bloggari þessa dagana. Lára mín ég skal gera mitt besta.
Ég hef svo sem ekki margt að segja. Flest kemur fram á Facebook. hehe
Jú ég er búin að komast undir fyrsta markmið og 650 gr undir svo nú er það bara næsta markmið… Ekki væri verra ef naflinn hætti að vera í fýlu og mittið kæmi aftur. All in good time.
Svo fór ég í gær að skoða hana Fríðu Maríu litlu frænku mína og hún er svo sæt og lítil.
Hafrún Ásta kveður í bili þar til hún hefur meira að segja.
Já, það er bara allir á Facebookinni. Ég hef alveg gleymt að skoða bloggsíður núorðið…