NOT Við Álfheiður Amý löbbuðum í ræktina í morgun og heim aftur. Það er óhætt að segja að ég hafi verið blaut inn að beini þegar við komum aftur heim. Hún hins vegar svaf vært í vagninum…
Skrapp í bíó með Sveinu minni í gær og sáum unglingamyndin 17 again. Myndin er ágætt en það sem okkur þótti fyndast var að við hækkuðum vel meðalaldrinn í salnum sennilega verið tvær af fáum sem höfðu kosningarétt í salnum.
Annars er ekkert að frétta. Hef ekki saumað mikið síðan á mánudaginn né prjónað því hægri hendin og öxlin eru að plaga mig.
Kveðja, Hafrún Ásta
Ég ætlaði nú varla að nenna út í bíl í morgun í þessu veðri..dugnaður í þér að labba í ræktina kona..:)
Og takk fyrir bíóið í gær…gott að komast út og hittast og spjalla:)
Knús
En þú dugleg.
Já, Hafrún. Veistu hvað? Ég fór að sjá myndina á laugardaginn var og ég hélt að ég væri elst á svæðinu. Það voru mest unglingar. En ég skemmti mér vel á myndinni. Mér fannst hún góð
Kveðja, Karen Knús
Vona að þú lagist sem fyrst elskan og farðu nú vel með þig!
skal reyna það en þarf að nota hendina svo mikið.
Hæ hæ Hafrún mín
Ég er bara að kvitta fyrir innlitið .
farðu nú vel með þig
knús þín Gunna