Að ég hafi látið hafa mig út í …
Að sauma þessa HAED mynd. Hún er 400 x 607 spor. Sem sagt 242.800 spor … Ég er búin með svona um 100 – 120 spor. bara rúmlega 242.000 eftir. Fyrstu 6 bls. eru bara skýin efst og ljósið og ég kemst ekki í að byrja á sporðinum fyrr en á bls.8 Þetta náttúrulega bilun og allt Erlu Björk að kenna hehehe. Já og pínu Rósu Tom.
-
Er að velta fyrir mér hvort ég eigi að gera þessa fyrst.

er svo enn að prjóna kjólinn hennar Álfheiðar Amýjar eins og ég get. Það er eins og öxlin leyfir.
Hafrún Ásta kveður í bili.
Vá, en þú dugleg í þessu
Ég verð að fara að byrja aftur…. hahahahaha…. Löngu komin tími á það.
Afhverju byrjarðu ekki bara þar sem vængirnir byrja og sleppir skýjunum? Ég held að hún myndi samt koma vel út.
hún væri samt risastór svo ég geri hana bara alla
þessi mynd er náttúrulega bara æði…
Verður gaman að fylgjast með henni verða til…
Hehe… ég skal alveg taka á mig sökina, er búin að sauma svona 4-5 bls af hári í The Langsuir,
en mér finnst ekki hægt að sleppa skýjunum á þessari mynd því þá hverfur megnið af sólinni.
En Hafrún mín, ég er búin að vera 3 ár eða eitthvað með The Langsuir og ég er ekki enn hálfnuð. Fyrir mér snýst þetta einungins um að njóta þess að sauma á meðan ég sauma og svo njóta árangurins síðar, stundum set ég mér 2-300 spor og þá er sko happy dance þegar þau eru komin.
Svo kemur hraðinn upp síðar líka.. En í hvernig efni ertu að sauma hana og yfir 1 eða?
sæl Hafrún. fór óvart inná síðuna þína,gaman að skoða hana. en ég vil bara segja ,gangi þér vel með myndina.hún er falleg.og það er meira að segja að sauma þessar myndir, þvílíkan smámunahátt hef ég aldrey upplifað. er búin með prelude to the kiss,var 5 mánuði að sauma hana,og er núna í gang með viktina.er alveg að verða búin með helmingin.og hefur það tekið mig 3 mánuði.en fallegar eru þær.og ég kem örugglega ekki til að sauma fleiri frá þeim, dætur mínar eiga að fá þessar myndir, en gangi þér vel og vonandi sýnirðu árangurinn inn á milli,,kveðja, Herdis , Dannmörku
Jamm Herdís velkomin á síðuna mína. Ég fer vonandi að halda áfram að sauma tók mér pínu pásu með hana.
Þú saumar bara þessa mynd Hafrún mín og ekkert rugl. Hún er ótrúlega flott og þótt hún taki langan tíma þá er það bara allt í lagi. Ég skora á þig