Dagurinn er liðinn og komið kvöld. Var þetta ekki nógu spennandi. Höfum svo sem ekki gert mikið í dag en ég fór þó og ákvað með yfirmanni mínum að mér verður sagt upp þar til í haust. Svo sjáum við hvort það verður laus handa mér staða þá ef ekki þá fer ég annað. Svo einfalt er það. En ég geri þá ráð fyrir að sækja um í Khí í haust og fara í nám. Ef ekki … þá fer ég að vinna þar til þá mun eflaust hellingur gerast og breytast.
Hafrún sem bloggar smátt þessa dagana.
Set svo inn myndir frá aðfangadegi og púðana tvo sem ég gat ekki sett inn strax því þeir voru jólagjafir.





Yndisleg jólafjölskyldan og að sjálfsögðu gullfallegt handverkið. Vona að það fari vel í litla Gáskann minn að vera soccer mom full time í bili. Knús á þig elskan!
Vildi bara óska ykkur gleðilegra áramóta og skemmtið ykkur vel í kvöld. Flottir púðarnir þínir.
Held að það fari bara ágætlega í gáskann að vera soccer mom í fullu starfi.