Vá það hefur margt gerst síðan ég bloggaði síðast og ég gleymi pottþétt einhverju. Ég fékk PIF gjöf frá Lindu í saumaklúbbnum þegar ég heimsótti hana á laugardaginn. Og oh boy er það flott. Ég fékk líka kvöldmat sem var mjög góður.

Að öðru … ég held áfram að skríða áfram á meðan það er áfram en ekki aftur á bak er ég sátt. Álfheiður Amý skriður líka áfram að vísu enn hermannaskrið, en hún fer upp á fjóra fætur og hefur nokkrum sinnum sest á rassinn sjálf. Enda fínt hún getur orðið pirr ef hún er föst á maganum. Hún er líka hætt að fá þurrmjólk drekkur nú stoðmjólk og vatn aog borðar eins og herforingi. Tennurnar eru orðnar þrjár.
Hafsteinn Vilbergs er fyrir norðan núna hjá Guðnýju ömmu sinni og fór með flugvél og þótti það mikið sport. Hann kemur svo að viku liðinni heima aftur erum búin að heyra í honum og hann er alsæll og það var gaman í flugvélinni.
Heiðmar Máni tekur framförum í að tala skýrar og er alltaf sama krúttmúsin og knúsar mömmu sína og segir “mamma þú ert sæt” eða “mamma þú ert góð stelpa”. Hann fékk að hoppa í pollagalla og stígvélum í öllum pollum sem hann fann í gær á leið í og úr sundi já við löbbuðum í sund í rigningunni í gær og vorum orðin holdvöt á leiðinni. hahaha en það var gaman í sundi og Álfheiður Amý steinsofnaði á leiðinni heim.
Ég er búin að fara með bumbuhópnum mínum í keilu og pool það var fjör. Svo fór ég á kaffihús með hinum mömmuhópnum og loks í bíó með Sigrúnu á Mamma Mia hún er fín mynd og maður sá ófáa dilla sér í sætunum og langa að syngja með. Sumir sungu bara með hehehe.
Hef enn ekki fundið þetta stykki á hleðslutækið svo enn eruð þið myndalaus … verðið bara að koma í heimsókn og sjá ormana mína.
Hafrún Ásta á framleið kveður í bili.
Flokkað undir: Góðir vinir, Lífið, fjölskylda, handavinna
Gott að þú sért ánægð með PIF gjöfina þína. Njóttu vel mín kæra og takk kærlega fyrir laugardaginn
Knús á þig sterka , duglega, yndislega Hafrún mín
Gott að allt gengur vel hjá þér. Æðislega flott PIF gjöf sem þú fékkst.
Til hamingju með afmælið Hafrún mín og allt lífið:) Hvað er eiginlega PIF ?????
PIF er Pay It Forward ég skráði mig í leik og fékk gjöf en gef 5 gjafir í staðinn … afmæli? ég á afmæli í nóvember krúttið mitt. En takk samt.
hæhæ Hafrún mín
flott gjöf sem þú fekkst knús og kvitt
þín Gunna