Hér höfum við verið netlaus í meira en viku routerinn bilaði. En Ari Már litli bró kom og reddaði því í gær.
Karen, Óli og Hlynur stóri bróðir, innilegar hamingjuóskir með krúttköggulinn. sem fæddist í gær hlakka til að sjá hann.
Já mér hefur orðið ýmislegt úr verki í netleysinu búin að búa til tvö sængur- og koddaver handa dóttir minni og þar af annað með nafninu sínu saumuðu í “Álfheiður Amý”. Set inn myndir þegar ég finn hleðslutækið fyrir myndvélina.
Allt er á réttri leið og ég ríf mig rólega upp úr fæðingarþunglyndinu. Lyfin virka og hjálpa en viðtalsmeðferðin er ótrúlega góð og hjálpar svo miklu meira. Ráðgjafinn minn er yndisleg kona og hjálpar mér mikið.
Álfheiður Amý er búin að fara í 6 mánaða skoðun og var þar 65,5 cm og 7.075 gr sem sagt algjör skvísa. Hún reynir og reynir að komast upp á hnéin og af stað. Ótrúleg orka í þessari dóttir minniSvo er ég að gera prufur í saumaskapnum það er á saumavél og ætla að prófa mig aðeins áfram í því … Hvernig lýst ykkur á það.

Hafrún Ásta kveður í bili.
Æðislegt að sjá þig hérna. Það fer að styttast að ég fari úr landinu. Við ættum kannski að hittast áður ef það tekst.
Hafðu það gott og gott að þú ert að jafna þig.
Kveðja, Karen. Knús
hæhæ Hafrún mín
innilits kvitt og knús og kram
kveðja Gunna
Þú getur bókstaflega allt elskan
Líst vel á þetta með saumavélina
Það fer alveg að bresta á sumarfrí hjá okkur og vonandi skellum við okkur í borgina og kíkjum á ykkur
Já Linda það lýst mér mjög vel á …
Gott að þér líður betur. Þú ert bara hörkudugleg að sjá um 3 börn, það er nú ekki auðvelt, jafnvel þó þau séu yndisleg. Gangi þér áfram vel elsku frænka. knús freyja
Já við stefnum á að kíkja á ykkur
Gunni kemur ekki með mér á fyrst um sinn en hann kemur seinna og þá kíkjum við á ykkur
Knús frá AK