Já Erna ég veit að pásan hefur verið löng. En ég var á fullu og gaf mér ekki tíma í að blogga. Þeir sem þekkja mikið vel vita hvað er búið að ganga á þið hin komist eflaust einhvern tíma að því … hehehe.
Annars erum við í fjölskyldufríi á Akureyri og gistum hjá tengdó … Erum búin að fara í nokkrar heimsóknir til Lindu, Gunna og strákanna. Hefur verið æði og Linda Rós (sem vill svo skemmtilega til að á tölvuna sem ég er að nota) Eldaði veislumáltíð ofan í allt gengið og Hreinsa og Petru í ofan á lag.
Erum búin að fara í Áshól og á Grenivík og svona…
Álfheiður Amý sem er 6 mánaða í dag heillar alla með brosinu sínu og strákarnir eru eins og þeir eiga að sér að vera.
En heima … já við höfum heldur betur verið dugleg þar og búin að gerbreyta baðherberginu og jafnvel meiri breytingar í vændum. Svo höfum við tekið út gömlu grindurnar úr okkar skáp og sett nýtt þar inn. Þó vantar slárnar og því eru upphengifötin enn út um allt. Gömlu grindurnar fóru í fatahengisskápinn og hann hefur því einnig verið tekinn í gegn. Nú og svo skáparnir hjá strákunum, kommóðan hennar Álfheiðar Amýjar og herbergið hans Hafsteins. Jamm bara harka í liðinu.
Að lokum hef ég sett mér 4 nýjar lífsreglur. Þær eru;
Ég ætla að vera sú manneskja sem ég á skilið að vera.
Ég ætla að vera sú móðir sem börnin mín eiga rétt á að eiga.
Ég ætla að vera sá lífsfélagi sem maðurinn minn á skilið að lifa með.
og síðast en ekki síst.
Ég ætla héðan í frá að stjórna sjálf minni eigin hamingju.
Hafrún Ásta kveður að norðan. En hvað varð af sólinni og hitabylgjunni?
Flokkað undir: Góðir vinir, Lífið, fjölskylda
Mikið búið að ganga á? Æj, nú fer maður fyrst að hafa áhyggjur. Vonandi er í lagi með ykkur öll. Knús.
Hafi það sem allra best.
Knús Karen
sólin og hitinn er hérna hjá okkur
kv. Anna Þóra
Takk fyrir bíóferðina í gær
og bara síðustu daga þetta er búið að vera frábærir dagar og ekki búið enn
Kveðja Linda
hæ Hafrún mín
vonadi hafið þið það gott fyrir norðan
ég er bara að kvitta fyrir innlitið knús Gunna
Líst á vel á þessar lífsreglur Hafrún mín
Hafið það gott elskurnar!
Þú ert best elsku vinkona
Knús á ykkur öll!!!!
Hæ öll netið er í bulli svo ekkert blogg í bili… Þarf að laga það fyrst. Þar til þá … Veriði góð hvert við annað.