Í dag kláraði ég og fór með til viðtakandans fyrsta pinkeepinn sem ég gerði og tók þar með þátt í leik í Allt í kross saumaklúbbnum mínum. Viðtakandinn var Halldóra.
Svona lítur gripurinn út og er þetta frumraun mín í þessu.
Nú og svo datt mér í hug að þið vilduð sjá litlu tönnslurnar hennar Álfheiðar Amý.
Ýtið á myndirnar til að stækka þær og aftur til að stækka þær enn meira.
Kveð í bili, Hafrún Ásta sem bloggar ekki oft þessa dagana.
Flokkað undir: Allt í kross saumaklúbburinn, Lífið, fjölskylda, handavinna




Voðalega ætlar hún að vera bráðþroska litla krúttið
Pinkeep-inn er æðislegur! Hvar fékkst uþetta munstur?
Takk fyrir það. Ég fann þetta munstur einhvers staðar á netinu. Ég á það bæði á mynd og svo setti ég það í PM finnst betra að sauma eftir því. Svona ef þig langar í það. Já hún fékk þessar tvær 4 1/2 mánaða það er þá sprakk fyrir þeim og hún beit mömmu sína í fyrsta skipti.
úff hvad thetta eru fínar tönnslur:)
Ekkert smá flottar tennur þarna!!
)
litla músin
flott munstrið sem þú valdir í Pinkeep-inn
Einstaklega vel tennt!
Smá spurning…hvað er “pinkeep”?
Er það eins og maður kallaði nálapúði í gamla daga, eða kannski eitthvað allt annað? Ég er greinilega ekki inni í svona handavinnu “slangi”.
kær kveðja
Freyja frænka
Freyja Pinkeep er bara skraut. ég gerði nálapúða fyrir stuttu líka og svo gerum við biscornupúða sem geta verið annað hvort skraut eða nálapúði og einnig nálarúllur. Allt til í dag. En hafðu engar áhyggjur ég skildi hvorki upp né niður í þessu öllu saman fyrr en ég fór í saumaklúbb sem saumar en ekki étur bara.
Til hamingju með tennurnar, litla
Þú ert alltaf jafn dugleg í saumaskapnum, ég hef varla saumað frá því ég gerði stóra jóladagatalið.
hæ hæ flottar myndir og tíl hamingju með tennurnar Álfheiður mín knús ykkar Gunna
Þetta er mjög flottur nálapúði. Þú mátt alveg splæsa munstrinu á mig ef þú tímir.
Álfheiður er voða sæt með nýju tennurnar.
alveg sjálfsagt Erla Björk
Takk Gunna mín
og Anna mín þú skjallar mig ég er nefnilega frekar löt í saumaskapnum þessa dagana.
Karen hvor litla það er ekki eins og ég sé stór sko. Var vísu ekki að fá neina tönn ekki einu sinni falskar hehe en ég lét laga tönn er það nóg…
Yndisleg skvísa og hörkuklár handavinnukona fallega mamma hennar
Til hamingju með tönnslurnar og útsauminn! Knús úr sveitinni
maí er að verða búinn…er ekkert bannað að blogga
Flottur Pinkeep og flottar tennur!