sitt lítið af hverju.

Hverjum dettur í hug að ég muni opna póst með þessu subjecti “No girl will now resist you!”? Ég bara spyr. Síðan í síðasta bloggi þar sem ég hrósaði Álfheiði Amý fyrir að sofa vel hefur hún sofið frekar illa eða á ég að segja lítið á næturnar.

Þess utan hefur Heiðmar Máni verið með hita (á föstudaginn) og ég líka og er enn hundslöpp, hausverkur, beinverkir og stuð.

Þar af leiðandi fór ég enn og aftur ekki í ungbarnasund með Álfheiði Amý sem er jamm kvefuð. Stuð á heimilinu. Hver segir að þið þurfið að horfa á Glæfravonir eða leiðindaljós til að fá drama. HEHE

Erla Björk til lukku með daginn …

Hafrún Ásta enn með pínku flensu.

8 svör

  1. Takk fyrir kveðjuna. Vonandi fara allir að hressast á heimilinu.

  2. vonadi fer ykkur að batna .þessi flensa er hundleiðinleg :( knús ykkar Gunna

  3. Bata kveðjur frá okkur úr hríðinni sem er búin að vera hérna á AK.

  4. Agalegt hvað þið ætlið að vera óheppin með allar þessar pestir í vor!!! Vonandi fer ykkur öllum að batna!!!
    Batakveðjur af Eggertsgötunni :)

  5. :D Takk fyrir gærkveldi, það var gaman ;) Og verðum fljótlega aftur með DVD – kvöld ;)

  6. takk fyrir batakveðjurnar allar … Við mæðgur fórum út í 90 mínútna göngutúr áðan og það var æði.

  7. hahahaha, ég var að lesa um 1. apríl gabbið þitt, vá hvað ég hló ;D haha!
    en vonandi fariði nú öll að hressast, það er að koma sumar og þá þarf maður að geta notið góða veðursins!

  8. Vona að þið séuð öll við góða heilsu og getið notið vorsins, þarna fyrir sunnan, hér er svona slyddurigning, rok og 2° hiti…………..

Skildu eftir svar