Næs

Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn …

Hittumst stór hluti af fjölskyldunni hér hjá okkur í gær og grilluðum allt of mikið af mat og borðuðum saman og kjöftuðum saman og það var bara NÆS… Annars er Heiðmar Máni heima veikur því hann var með 39°C hita í gær eftir að við komum heim úr skrúðgöngunni. jamm fór í smá skrúðgöngu og álfheiður svaf vel í vagninum en vaknaði eldhress innan um allt fólkið til að vera með í partýinu. Sofnaði svo aftur á leiðinni heim.

Álfheiður Amý fór að sofa klukkan að verða 21 og sofnaði við að drekka pelann. Vaknaði svo mega pirruð um kl.23 en fór aftur að sofa og svaf til kl.6 í morgun. Veit ekki hvort ég á að þora að segja svona frá þessu hún vaknar eflaust 4 sinnum í nótt í staðinn hehe.

Hafrún ásta í stuttbuxum eða þannig.

3 svör

  1. Gleðilegt sumar Hafrún mín og takk fyrir veturinn.

  2. Gleðilegt sumar Hafrún mín og takk fyrir veturinn
    knús þín Gunna

  3. Gleðilegt Sumar, betra seint en aldrei ;)

Skildu eftir svar