Jamm það er sprungið fyrir 2 tönnum hjá dömunni og hún er þar af leiðandi á undan bræðrum sínum að fá tennur. Algjör pæja og verður bráðum með neðri framtennurnar tvær upp í loftið.
Já það hefur margt drifið á daga mína komst loksins í saumaklúbb í gærkvöldi og það var æði. Frábært að hitta þessar frábæru stelpur.
Svo fer nú að koma að því að ég hitti Karen við erum búnar að reyna að finna tíma í það í dálítinn tíma. Ætlum að glápa á videó saman.
Fékk ansi áhugavert símtal í fyrradag þá hringdi maður til að spyrja mig um peugoetinn afhverju við hefðum selt/skilað honum og hvernig bíll hann væri. Ég gaf bílnum bestu meðmæli þó ég græði ekkert á því. Enda er þetta góður bíll og bara árin 3 af rekstraleigunni liðin og það orðið aðeins og dýrt fyrir okkur. En ég er mjög sátt við nýja bílinn þá ég sakni hins pínu því það er miklu minna veghljóð í honum … eiginlega ekkert.
Er búin að sauma meira í jóladúkinn og sauma smá aðra mynd og ætla að prófa að búa til pinkeep úr henni.
Allavega allir hressir og kátir hér… heyrumst/skjáumst fljótt aftur…
Hafrún Ásta kveður í bili.
Til hamingju með Álfheiði Amýjar. Þannig hún er undan í því
Gaman gaman, hlakka til að sjá hana fljótlega og sjá nýju tennurnar hennar.
Já, við verðum endilega að finna videótíma. Er laugardagskvöldið ekki alltaf ykkur Sigga kvöld? En hvað með sunnudagskvöldið? Ég er sjálf að fara út að borða á föstudagskvöldinu með stelpunum. Jæja, þú lætur mig bara vita.
Knús Karen
Litla skottan bara að koma með tönnslur!!
Glæsilegt!!
Til lukku með það
Til hamingju með það, Gísli virðist ekkert vera á leiðinni að fá tennur, hélt það á sínum tíma en hann er bara slefari… hehehe..
Það sögðu allir hvað þau geta slefað endalaust en ég vissi að það væru að koma tennur. Læknirinn sagði þetta er ekkert bólgið einu sinni en ég vissi betur. Get svo sýnt honum tennurnar í næstu skoðun.