Jæja þá er fyrsta PIF gjöfin komin til sín eiganda. Og þá er bara að vinna í næstu en ég er svo sem að vinna í tveimur eins og er.
Sú fyrsta fór til Lindu vinkonu minnar á Akureyri.


framhlið og bakhlið.
Svo er ég dugleg í jóladúknum en hef ekki tekið nýja mynd geri það fljótlega.
Álfheiður Amý er farin að fá graut og hefur nú tvisvar fengið smá eftir hádegispelann. Henni finnst hann bara fínn pínu skrýtið en samt gott. Jamm litli fjörkálfurinn minn er orðinn 4 mánaða og spræk sem áður. Hún er þó kvefuð og sefur ekki nógu vel þess vegna …
Fór á fimmtudaginn heim til Gyðu og sótti Ester á leiðinni við borðuðum svo geggjaðan mat hjá Gyðu og kjöftuðum frá okkur allt vit. Var geggjað að hitta stelpurnar og rifja upp gamla tíma. Gleymdi að taka myndir svo þetta er linkur á gamla mynd frá 2004 þegar við hittumst síðast allar 3
Annars gengur lífið sinn vanagang hér í Grafarvoginum og vonandi hjá ykkur öllum líka.
Hafrún Ásta
En gaman að heyra um allt. Sérstaklega endurfundinn hjá ykkur stelpurnar. Gott að halda góð sambandi
Knús, Karen
hæ Hafrún mín
vá hvað þetta er fallegt hjá þér .svo flott
vonandi batnar Álfheiði í kvefinu .knús ykkar Gunna
Púðinn er æðislega flottur, sérstaklega life.
Glæsilegur púði hjá þér!!!
Jebb hann er flottur þessi and he is mine…bwhahahahahaha