friðurinn úti

Hehe og afhverju er það svo … Álfheiður Amý snéri sér sjálf yfir af bakinu á magann. Nú og svona til að toppa það aftur til baka. Áður en ég veit af verður hún farin að sitja sjálf, skríða, standa upp og verða handóð … Jamm!!!

Bræður hennar voru snöggir til og hún greinilega líka…

Hafrún Ásta kveður úr bólinu og afslöppuninni.

P.S. er hann bilaður puttinn þinn. Heiðmar Máni vildi taka í puttann á pabba sínum eins og Álfheiður Amý og spurði svo “Er hann bilaður puttinn þinn pabbi.” Útskýring pabbi hans prumpaði ekki … Siggi segir stundum við hann taktu í puttann þegar hann þarf að prumpa og Heiðmar Máni heyrði ekki neitt prump hehehe.

Hafrún Ásta kveður aftur. nú klukkan 19:56

3 svör

  1. Frábært að heyra það ;) til hamingju með Álfheiði Amý ;)

  2. Dugleg stelpa hún Álfheiður. Gott að aðgerðin tókst vel, hvað var annars að?? Það fylgdi ekki sögunni? Vonandi tekst þér eitthvað að hvíla þig, þó þú sért með 3 lítil kríli.
    Bestu kveðjur
    Freyja

  3. Freyja það var verið að hengja upp þvagrásina. Hún dróst niður þegar Hafsteinn var tekinn með sogklukkunni.

Skildu eftir svar