komin heim …

Og aðgerðin búin kom heim upp úr hádegi. Japla á sýklalyfjum og verkjatöflum. Þurfti að tilkynna klósettferðirnar og fara í ómskoðun til að sjá hvort blaðran tæmdist nóg … Þar til mér tókst að tæma hana. Saumaði sæmilega upp á spítala en það er gott að koma heim. Nú á ég að taka það rólega og má ekki beygja mig og taka upp stelpuna og svo eftir smá tíma má ég beygja mig en á að nota hnéin ekki bogra. En já taka því rólega og engar þungalyftingar.

Siggi er svo að vinna eitthvað um helgina en Sigrún mín ætlar að aðstoða mig eitthvað … Voru 3 saman á stofu upp á St. Jósefsspítala þær sögðu allar að þær þökkuðu sínum sæla að vera ekki með svona ung börn og hvað þá 4 mánaða núna. Þær ætluðu allar heim í rúm að hvíla sig og slaka á. Oh well “this is my life”…. með eurovision undirspili.

 

þetta er núna inn í mér reyndar búið að klippa svo ofan af þessu

þessa mynd er að finna á bæklingnum mínum

Mér líður eins og læknirinn sem sagði að aðgerðin hefði tekist mjög vel hafi sparkað af öllu afli í klofið á mér ég er svo marin og svo kem smá blóð meðfram saumunum. Alltaf svo pen í þessum bloggum mínum hehe.

Er nánast búin að klára PIF gjöf númer 1 og langt komin með númer 2 en set ekki inn myndir af þeim hér fyrr en þær skila sér til eigendanna.

 Hafrún Ásta kveður á smekklega og penu nótunum.

6 svör

  1. Velkomin aftur heim og gott að heyra að aðgerðin gekk vel. En já, ég trúi því vel. Úff, það hlýtur að vera erfitt að vera nýkomin úr aðgerð með bara 4 mánaða barn. En gangi þér vel.

    Knús Karen :D

  2. Góðan bata baby!!!

  3. Gott að þetta gekk vel. Trúi vel að það sé gott að koma heim. Vonandi verður Álfheiður góð og stillt. Hlýddu svo lækninum og taktu því rólega.

  4. Farðu einstaklega vel með þig elskan og láttu Sigga nú skokka vel í kringum þig ;)

  5. Ég reyni að slaka á.

  6. Hæ hæ Hafrún mín
    það er gott að þetta gekk vél .Farðu vél með þig og hvildu þig vél .Knús þín Gunna

Skildu eftir svar