Sko Heiðmar Máni er hlaupabóla 1 og hún er að hverfa og Álfheiður Amý er hlaupabóla 2 og hún er einnig að byrja að hopa þar smám saman. Álfheiður Amý virðist þó vera að kvefast eitthvað og er farin að verða piruð á næturnar. Hafsteinn Vilbergs er svo hlaupabóla 3 en hann er að byrja að þorna upp það er bólurnar.
En hann lýtur annars svona út.

öll 3 saman svo sæt. Takið eftir slefutaumnum út úr Álfheiði Amý.
Heiðmar Máni að gefa Álfheiði Amý pela
Flott þessi börn sem við eigum …
Hafrún Ásta kveður frá Bólubæ í bili
Flokkað undir: Lífið, fjölskylda


Glæsileg börn.
Verður Álfheiður Amý heima á morgun? Það er pakki á leiðinni til hennar.
já Álfheiður Amý verður heima fyrir kl.11 og eftir 11:30 og svo fyrir kl.14 hehe. og svo aftur eftir kl.15
Vá hvað hún er bisý. Þetta er greinilega athafnamanneskja. Ég skutlast til hennar milli 10 og 11. Fer eftir hvað er mikið að gera í vinnunni.
ok.Getur líka komið eftir kl.15. Þá erum við ekkert að flýta okkur.
Þá verð ég svo upptekin. Það er svo brjálað að gera hjá mér þessa dagana.
ok sjáumst þá á milli 10 og 11
Sætar myndir….nema bólurnar kannski