það sem börnum dettur í hug

Hafsteinn Vilbergs benti á geirvörtuna á sér í gær og sagði þetta er sko ekki hlaupabóla þetta er brjóstið á mér. Já sagði ég þetta er sko geirvartan á þér og hún er á brjóstkassanum. Hann var fljótur að svara…. “Já ég er þá með kassabrjóst og Heiðmar Máni og pabbi. En þú mamma er með svona hringbrjóst, og Álfheiður Amý líka bara lítil hringbrjóst.”

Aha einmitt það

Annars fékk Hafsteinn Vilbergs að gefa Álfheiði Amý pelann sinn í gærkvöldi og fannst það svaka gaman.

 

Svo tók ég þátt í svona skiptileik í saumaklúbbnum mínum og ég gerði fyrir Aistè svona skærapúða … ég valdi að gera litla nálarúllu einn yfir einn. hún lítur svona út

Svo kláraði ég stykki sem ég byrjaði á fyrir löngu svo sætt. Á eftir að gera eitthvað úr því fáið að sjá það seinna.

Kveðja frá Bólubæ…

4 svör

  1. hahahahaha. Já, hugmyndaflugið hjá krökkunum. Það getur stundum verið alveg ótrúlegt.

  2. Hahaha hringbrjóst! Krúttið!!!!!
    En ég sendi mínar bestu bættrar heilsukveðjur til ykkar, vonandi fara þessar pestir að ganga yfir hjá ykkur.
    Knús á línuna!!!

  3. En flottur skærapúði. Sniðug hugmynd.

  4. Krúttlegir þessir gullmolar sem koma frá þessum englum :o Rosa flott hjá þér Hafrún mín :)
    Kveðja að norðan

Skildu eftir svar