Clapton á leiðinni

Jamm karlinn kemur í ágúst víst og spilar í Egilshöllinni. Ég ætla pottþétt að fara. Finnst hann æðislegur.

Annars fór ég með mömmu og pabba í bíó í gær að sjá Brúðgumann. Fín mynd og við fórum í lúxus salinn í boði pabba. Við hlið mér sat kona með dóttir sinni og syni sem var um 8-9 ára. Nú þetta er í sjálfu sér ekki frásögu færandi nema… Í myndinni er nektarsena og í henni sést nakin kona og fyrst heyrist OJ svo sést meiri nekt konu og þá heyrist enn ákveðnara OoJj. Þetta er fín mynd og vel hægt að hlægja að henni en þetta fannst mér samt svo fyndið.

Krakkarnir eru dugleg og flott eins og alltaf. Heiðmar Máni bað um að fá að fara í leikskólann í gær en í morgun var hann ekki eins spenntur. Hafsteinn Vilbergs er að fara á leiklistaræfingu í dag eftir skóla. Hann er svo alsæll með að vera á þessu námskeiði og ég skal sko ekki gleyma því í dag. Álfheiður Amý varð 2 mánaða á laugardaginn (9 vikna í gær samt). Það er pínu kvef í henni og vonandi nær hún að rífa það úr sér fljótt og vel. Jæja við Álfheiður Amý skruppum í smá labbitúr með Lóu og Rakel Díu. Það var bara næs og móðir skartar núna þessum fínu eplakinnum á meðan litla skvís kúrir í gærupokanum í vagninum og hefur það notalegt.

Þessi snjór virðist ætla að vera endalaus …

Hafrún Ásta yfir og út.

8 svör

  1. Hei, hei, bara búin að fara á myndina. Sniff, sniff. Langar að sjá hana. Kannski reyni ég að fá Möggu vinkonu á hana. :P

    Takk fyrir síðast. Kristófer skemmti sér konungslega vel. :D

  2. já Karen sorrý … Já Kristófer vildi sko ekkert fara heim hehe.

  3. Ohhh væri sko alveg til að fara að sjá Clapton :D
    Love him!!!

  4. kemurðu með Karen Ulrich. Krílið verður komið út…

  5. Soccermom extraordinary!!!

  6. Þetta verður líklega í fyrsta sinn sem ég sé ástæðu til að fara á tónleika með erlendum listamanni hér á landi…hann hefur verið mitt uppáhald í amk. 30 ár,- ég ætla og hlakka mikið til! Knús ljúfan mín og til hamingju með tveggja mánaða Álfheiði Amý;-)

  7. Búin að sjá Brúðguman og hló alveg helling :o ) Góð mynd og svo er flott að fara á leikritið Ivanov á eftir:o)
    Flottar myndir og dúllunum :o ) Og já þessi snjór er endalaus núna ;o)

  8. Soccermom hvað Hafsteinn er á leiklistarnámskeiði Erna mín

    Halla mín já Clapton er æði.

    Linda Rós – mamma og pabbi fóru á leikritið fyrst og sögðu að það væri heilmikill munur en þó sömu leikarar sem kæmi skemmtilega út.

Skildu eftir svar