Jæja var með Karen í heimsókn í gærkvöldi og það var bara gaman horfðum á 2 DVD myndir eina með Cathrine Zeta Jones man ekki nafnið á henni en hún er kokkur í henni. Síðan þegar börnin voru sofnuð horfðum við á Sin eater (heitir í USA The order) með Heath Ledger þessi mydn virðist ekki hafa komið í bíó allavega man ég ekki eftir því er 2 ára gömul. Ég skottaðist svo loks í rúmið á miðnætti.
Nú Álfheiður Amý sofnaði seinust og lét hafa pínu fyrir sér. En vaknaði svo klukkan 4 til að fá pelann sinn. Nú ég skreið upp í aftur um kl. 4:45. Stuttu seinna eða svo virtist það um kl. 6 skreið Hafsteinn upp í og brölti um. Hann var alltaf að spyrja hvað klukkan væri hann ætlaði sko ekki að missa af barnaefninu. Sem sagt svo fór hann fram og kom inn aftur til að segja mér klukkan 7:30 að rúmið hans Heiðmars Mána væri blautt. Ég frekar þreytt spurði hvað hann hefði verið að gera í rúminu hans Heiðmars Mána og til hvers hann hafi verið að vekja hann. Kannski ekki alveg rétta tilsvarið. En ég fór og hreinsaði Heiðmar Mána og rúmið var nú ekkert alvarlegt. En þeir bræður fóru svo inn í stofu að borða hunangs cheerios. Þeir fá það bara á laugardögum og horfðu á stillimyndina fram að barnaefni ég lagðits upp í aftur með Álfheiði Amý með hurðina þannig að ég heyrði í þeim. Við mæðgur skriðum svo fram um kl.8:35.
Svo virðist sem ég hafi ekki mátt segja frá dugnaði Heiðmars Mána því hann pissaði undir í nótt aftur og í buxurnar áðan og í gær og kúkaði í þær í gær líka. Hann er sko búin að vera rosalega duglegur síðustu 2 vikur… Ég veit ekki hvað hefur eiginlega gerst. Vonandi líður þetta hjá.
Jæja Siggi kemur heim í fyrramálið það verður nú gott að fá hann heim. Þótt ég sakni hans helling vona ég að hann sofi vel í flugvélinni… Því ég er þreytt og vil leggja mig. Hljómar ekki vel að ég skríði í sturtu og inn að sofa þegar hann kemur heim en kannski fæ ég góðan svefn í nótt. Kannski er það önnur hver nótt hjá Álfheiði Amý sem hún sefur lengur en 6 og 1/2 tími á milli pela er kannski slatti hjá henni. Og ég ætti bara að koma mér fyrr í rúmið.

Álfheiður með stráka takta hehe þessari mynd er uppstilt fyrir myndatöku.
![]()

Þetta er svo það sem Álfheiður Amý er að gera núna.
Hafrún Ásta sem hættir að vera grasekkja á morgun.
Flokkað undir: Góðir vinir, Lífið, fjölskylda
Ég þakka æðislega fyrir gærkveldi og það var mjög gaman.
Þótt ég sofnaði í smástund… hehehhehe.
Já, spurning hvað sé besta ráð við Heiðmari. Ég man að Kristófer pissaði ekkert undir í margar mánuði. Svo gerist aftur í nokkra nætur. Síðan hætti það. Svo aftur ekkert neitt í margar mánuði. Svo kannski 2 til 3 skipti. Svo bara aftur ekkert neitt. En bara spurning hvað er í gangi. Eru þeim að dreyma illa? Eða??? En ég er búin að sjá það að Kristófer megi alls ekki drekka of mikið djús. Enda gef ég honum sjaldan djús. Oftast þau skipti sem hann hefur fengið djús, þá hefur komið slys….. Eins og hann þolir ekki djúsinn.
En gangið þér vel að finna ráð. Kannski að prófa að segja við hann að þú ætlar að segja hann aftur á bleiunni ef hann heldur áfram að kúka í buxurnar.
Knús Karen
Elskan, óska þér hvíldar í nánustu framtíð
Hey ég er búin að sjá þessa mynd með Catherine Zeta Jones, hvað heitir hún nú aftur? No reservations, getur það verið? Allavega, fínasta mynd, mjög sæt
!.. Það eru líka myndirnar af Álfheiði Amý strákastelpu, hehehe
júbb akkúrat Bergþóra hún heitir það …