Og nú var hún bara viktuð á tölvuviktinni. Og daman er *drumroll* 3.940 gr sem segir okkur að hún er að þyngjast var 3.790 gr á tölvuviktinni síðast. En á hinu lyftidótinu var hún 3.850 síðast … Skil ekki hví munurinn er svona mikill. Allavega er hún að þyngjast og frá síðasta fimmtudegi erum við að tala um 150 gr og fer hún aftur í aukaviktun á föstudaginn. Reyndar á sama tíma og sundhópurinn ætlar að hittast og þar sem ég er bíllaus verð ég að reyna að fá far.
Nú áðan virtist bakflæðið eitthvað hrjá Álfheiði Amý aftur en vonandi bara tilfallandi. Annars fórum við í dag með Sveinu í Smáralind í dag og ekki virtist Álfheiður Amý neitt hrifinn af Smáralind. Skil hana svo sem vel en varð miklu sáttari eftir að hafa fengið pínu að súpa … hún hefur viljað drekka frekar ört í dag. Vaxtarkippur kannski. Hver veit.
Á morgun á ég von allavega tveimur heimsóknum og svo eru hinir og þessir hittingar á næstunni á kvöldin (miðvikudags og fimmtudagskvöld) og svo á föstudagsmorguninn. Reynum að ná þessu öllu. Og á mánudaginn ætlar litli frænkuhópurinn að hittast með gríslingana sína og það verður bara gaman.
Muhahahaha á meðan ég er að blogga liggur Álfheiður Amý á bringunni á pabba sínum og tók sér sinn tíma í að leita og beit svo með gómunum í geirvörtuna á pabba sínum sem fannst það ekki neitt svakalega gott. Ég sem þoli þetta oft á dag í enda gjafa þegar henni dettur í hug að sleppa og klemma ekki gott hehehehehe.

kát lítil skvísa og fyrsta brosið sem næst á mynd
Hafrún Ásta með aktívt félagslíf.
Flokkað undir: Góðir vinir, Lífið, fjölskylda
Æðisleg mynd
) Flottust ;o)
Æðislegt að heyra það að hún sé orðin þyngri.
Hún er algjör krútt.
frábært að hún sé að þyngjast – ég skil ekki hversvegna rislan er notuð því að það er heilmikill munur á þyngd þegar mælt er með rislu og svo aftur með tölvuviktinni – asnalegt… sérstaklega þegar farið er að valda okkur mömmunum áhyggjum
jamm en hún er allavega að þyngjast og virðist kát stelpa þó hún vilji ekki sofa á daginn og kvöldin. En hún svaf í 6 tíma straight í nótt vakti svo í 2 og svaf svo í um 2 í morgun.