28. nóv …

Og ekkert að gerast … En ég kíkti til hennar Lindu í heimsókn. Kom úr þeirri heimsókn með 5 poka af stelpufötum aðallega í stærðum sem koma eftir það sem ég er með núna. Vantar ekki örlætið enda er ég núna með helling sem kemur frá Önnu Jóhönnu. Allir svo næs. En daman er nú samt ekki að flýta sér neitt svo þið verðið bara að bíða lengur… Og við líka hehe.

En hér eru tveir strákar sem eru að verða frekar spenntir fyrir jólaskrautinu og vilja fara að koma því upp.

Til lukku með 28 ára afmælið Lára mín.

Hafrún Ásta sem hefur ekkert að segja og bumbuskvísa sem er ekkert að flýta sér ennþá.

7 svör

  1. Það eru nú líka ennþá 2 dagar í hana. Ekki satt?

  2. Miða ennþá á 30. nóv allavega til 1.des.

  3. ég mæli samt ekki með laxerolíunni, frekar skaltu bara bíða smá.. ;) og það er ekki mér að kenna að ég kom ekki í laufabrauðsgerð, mamma lét mig ekki vita!

  4. hihi enda hún með eindæmum gleymin hún mamma þín Bergþóra mín. Nei ég mun ekki snerta á laxerolíu ekki núna né nokkurn tíma JAKK hehehe

  5. ;) Já, er ekki komin tími að skreyta ;) Ég er búin að skreyta næstum því allt hérna. Því við erum að fara í bústað um helgina. Gott að vera búin að þessu.

    Gangið þér vel :D :D:D

  6. hæ hæ
    takk fyrir kvitið á síðuna mína .
    ég er reyndar ekki búin að skreyta en ég geri það liklega um heilgina en ég vona að daman fari að koma :) knús þín Gunna

  7. Á morgun er dagurinn…
    :D

Skildu eftir svar