fann þetta á mbl.is http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1305193 Þetta hlaut að vera vitleysa…
Að öðru Hafsteinn er veikur ennþá, hann var veikur í gær og er enn. Enda vil ég alls ekki að hann fari svona kvefaður í sundkennslu. Vonandi fer hann að jafna sig greyið svo vont að hósta svona þurrt. Ef þetta fer ekki að lagast fer ég með hann til doksa.
Það er nú spurning hvort maður athugi þetta eitthvað??? Gæti nú verið gaman að setja skvísuna í svona.
Hafrún Ásta og bumbuskvísa sem virðist hafa það rosalega gott inn í bumbunni.
Flokkað undir: Lífið, fjölskylda, grín
Vonandi jafna hann sig fljótlega. Minn sonur er líka heima veikur hjá pabba sínum.
Já, á að kaupa barnaföt þar?
Kveðja, Karen.
Farðu vel með snúðinn og líka þig
Vissi að það var eitthvað sem ég var að gleyma!!!! Ég ætlaði að koma í laufabrauðsútskurð….jæja ég er hvort eð er vonlaus skerari og ekkert af börnunum hefðu komist en það hefði nú verið gaman að hitta ykkur öll;-) Verður konfektdagur? Það væri nú gaman;-) Horfa á prinsessuna og búa til konfekt, syngja jólalög og bulla…
Jæja nú styttist þetta nú hjá þér, hún kemur næsta sunnudag, hress og kát, það væri voða sætt, afmæli langömmu hennar og fyrsti í aðventu…Knús ljúfan mín
Ps gleymdi, knúsaðu Hafstein súperman frá mér, hann er svo flottur;-)
Halla nei hún kemur á föstudaginn það er svo kúl öll 30. 3 mán í röð en ég sætti mig við 2.des hehe. Geri ekki ráð fyrir konfektdegi en laufabrauðsgerðin var skemmtileg. Já við vorum alveg “hva ætlaði Halla ekki að koma” hehe. En við hittumst á jóladag er það ekki. Eða fyrr ef þú kemur að kíkja á litlu dömuna. Jamm skila knúsi á Hafsteinn hann er undir teppi að glápa á skrípó en kláraði fyrst að læra heima fyrir vikuna algjör hetja…