Þessa helgi…
Fórum á Hótel Örk á jólahlaðborð og það var fínt að vísu fannst mér hangikjötið salt og og kalkúnninn ekki nógu góður. En það var margt annað þarna sem var ljúffengt. Gistum þar eina nótt og brunuðum svo í bæinn beint til mömmu og pabba.
Þar var skorið laufabrauð með fullt af frábæru fólki. Skornar voru 220 kökur nýtt met held ég og mörg listaverkin litu dagsins ljós.
Nú í dag var svo piparkökuskreytingardagur í leikskólanum og Siggi fór með Heiðmar Mána að skreyta. Hafsteinn Vilbergs vaknaði eitthvað svo sár í hálsinu og hás og varð þvi að vera eftir heima… Þótt honum hafi ekki fundist það spennandi.
Allavega er frekar þreytt í bakinu og næsta vika á að fara í rólegheit … Sjáum til hvernig það gengur…
Hafrún Ásta sem bíður bara eftir skvísunni.
Kveðja, Karen.