
Þú fellur fyrir frinsum (froskur + prins).
Sé karlkynið flokkað í prinsa, froska, proska og frinsa leikur enginn vafi á hvaða manngerð/dýrategund þú fellur fyrir. Þú laðast að frinsum. Frinsinn líkist í flestu froskinum. Hann sýnir sjaldan rómantíska tilhneigð og getur átt það til að vera ansi óhugulsamurr. Láttu þér ekki bregða þótt frinsinn gleymi afmælisdeginum þínum, brúðkaupsdeginum eða jólagjöfinni. Þótt þú gengir með post-it miða á enninu sem á stæði ?ég vildi að frinsinn minn myndi koma mér á óvart og kaupa handa mér blómvönd? stæði blómavasinn tómur á stofuborðinu um ókomna tíð.
Þeir sem hyggja á samband við frins þrátt fyrir það geta endanlega kvatt sjónvarpsfjarstýringuna. Frinsar deila henni ekki með neinum. Búðu þig undir löng kvöld yfir íþróttum og Jean-Claude van Damme. Búðu þig einnig undir dimm kvöld því ekki láta þig dreyma um að frinsinn skipti um ljósaperu.
Finnist þér skemmtilegt að tína skítuga sokka eftir aðra upp af gólfinu átt þú sannarlega samleið með frinsinum. Þyki þér það hins vegar ekki hápunktur tilverunnar og þú gerist svo djörf að biðja frinsinn að hirða sjálfan upp eftir sig sokkana máttu eiga von á að hann hækki í iPodinum sínum og láti sem hann heyri ekki í þér.
Eini munurinn á frinsinum og froskinum er sá að einstaka sinnum bólar á prinslegum eiginleikum í fari frinsins er hann kemur þér á óvart með framtakssemi eða rómantísku uppátæki.
Flokkað undir: grín
Hehehehehe, ég fell fyrir prinsum…. hehe
Prinsum…en ekki hvað
Ekki prinsum…..neibb þá þarf maður pottþétt að gera allt sjálfur þar sem þeir eru vanir að láta stjana við sig. Enn hvað með proska hvernig eru þeir ???? Ég efast um að ég falli fyrir frinsum eða froskum heldur…..hummmm …..hvað á ég þá að velja…..????? hehe undir hvað myndi kallinn flokkast. Hafrún þú ættir að geta dæmt hann hehe ….varst mikið í kringum hann á tímabili.
hihi æji þeir hafa allir sína kosti og sína galla þessar elskur. Ætli þinn flokkist ekki sem proskur bara.
Ég fell greinilega fyrir Prinsum og er Steikt DramaDrottning. Góð blanda:)