Holy Cow 121!!!

Er eðlilegt að breytast í loftbelg á meðgöngu ég var með 115 cm bumbu þegar Heiðmar Máni fæddist 2003 og ég var 120 cm þegar Hafsteinn Vilbergs fæddist 2000. En guys ég er orðin 121 cm núna og á allavega 2-6 vikur eftir. Ég er að breytast í veltukarl. Finnst það eiginlega ekki fyndið. Ég labba eins og hölt mörgæs og það trúir engin að ég eigi að eiga samkvæmt sónar 5.des. Skrapp í Smáralind í smá stund í gær og var bara búin á því um kvöldið og í nótt í bakinu.

P.S. fleiri myndir á heimasíðu strákanna. 

Kveðja, halta mörgæsin

12 svör

  1. Trúi vel að þú sért orðin þreytt. Og erfiðasti mánuðurinn eftir. En þetta styttist með hverjum deginum. Bara 26 dagar í 30.nóv.

  2. Þetta er bara rosalega flott kúla, þú lítur vel út!

  3. Úúúúú Geggjuð bumba.

    Ekki sammála Erlu Björk. Skemmtilegasti mánuðurinn, sá síðasti. Ég var alltaf (í bæði skiptin) svo full af sköpunarkrafti síðasta mánuðinn og tilhlökkun til fæðingarinnar ;)

  4. Þó þér finnist þetta kannski vera svaðaleg bumba þá finnst mér hún mjög flott og þú tekur þig vel út svona ólétt! Og svo má líka bæta við að það er alveg pottþétt að það fer ekki illa um dömuna þína í öllu þessu legvatni ;-)

  5. Ég veit að bakið getur gert illilega vart við sig og ég finn innilega til með þér, en get samt ekki að því gert að þú ert einfaldlega krúttulegasta bumbulína í heimi!!! Ég Ímynda mér að ef Kærleiksbírna yrði ólétt myndi hún líta út eins og þú….bara kannski bleik…. :)
    Kossar og fullt kærleiksknúsum til þín og þinna!!!

  6. Ég á því miður ekki bleikan galla Erna mín til að testa þetta en tek þig bara trúanlega.

    takk stelpur mínar ég get alltaf skotist hérna inn þegar hvalakomplexarnir byrja að gera vart við sig. hehehehe

  7. Hahahaha ég held að ég myndi borga ansi mikið fyrir að sjá þig svona ólétta í bleikum care bears búning!!!
    Priceless!!!
    En mér finnst þú taka þig afar vel út ;D

  8. Þú ert bæði sæt og fín og betri uppeldisstöð hefði litla frænka bara ekki geta valið…. Knús mér finnst þú flott,- hvort sem þú ert mjó eða ólétt og hana nú!!!

  9. Hve mikið Karen. Það spurning um að leigja búning og bjóða þér í heimsókn.

    Takk fyrir Halla mín…

  10. Bara flott njóttu þess ;o) Flott kúla á flottri konu :o )
    Kv.Linda

  11. Hæ, hæ. Já, það verður gaman að sjá hvenær litla dúllan ætlar að koma!!!!! Þú virðist alveg verið að springa, svo kannski kemur hún fyrr eins og þú vonar. Aldrei að vita. ;) En hlakka samt til að fá hana í afmælisgjöf… hehehehhehe.

    Kveðja, Karen.

  12. Þú getur allavega ekki reynt að neita fyrir það að þú sért ólétt ;) hoho
    en mér finnst þú ótrúlega fín svona ólétt, hlakka mikið til að fá litla skottu !

Skildu eftir svar