2.nóv 2007

Kæra dagbók,

Morguninn byrjaði á hersingu sem kom inn í svefnhebergi og kyssti mig og knúsaði. Nú svo ákvað ég, þó Siggi og Heiðmar Máni færu (Hafsteinn Vilbergs er í vetrarfríi) af stað í sína dagveru, að kúra pínu lengur. Hafsteinn hefur sem sagt ekki þann eiginleika að geta sofið út nema þegar hann á að mæta í skólann og þá aðeins til um kl.8. Ja hann fer fram og ég heyri hann baksa við stól til að ná í disk og svo nær hann í cheeriosið og svo mjólkina. Síðan heyrist flúmp og “Úpsís” jamm dagurinn er byrjaður hjá mér einn pottur af mjólk í gólfið og þrif á honum svona svo gólfið verði ekki dásamlega klístrað. Klukkan er 7:40 og dagurinn er svo sannarlega byrjaður.

En jú jú hann getur bara skánað úr þessu … Hætt þessu kvarti og kveini ég ákveð bara að þetta verði frábær dagur… Enda ekki nema tvö ár á milli okkar Sigga í rétt rúman mánuð.

Svo er ég líka búin að fá tvo pakka í afmælisleiknum í saumaklúbbnum mínum það er alltaf næs sko. Nýtt saumadót …

Hafrún Ásta þreytta sem hefði alveg viljað sofa til allavega kl.8 hehe.

P.S. það eru ekki allir sem komast upp með að líta út eins og Keikó á þurru landi eða skuttogari þið megið velja hehe.

 Update: Ég fór í blóðprufu í gær. Held að læknirinn hafi viljað athuga hvort það væri eitthvað þrátt fyrir að hún hafi hlustað mig tvisvar og ekki fundið neitt ofan í mér. Og læknirinn hringdi núna rétt áðan til að segja mér að það hefði fundist einhver smá sýking í blóðinu. Sennilega byrjun á bronkítis eða eitthver veirusýking og hún vill að ég taki leyft (á meðgöngu) sýklalyf í viku og sjá hvort það minnki hóstann. Ég sagði henni að hann hefði minnkað en málið er að hann hefur aðallega mýkst vegna þess að ég er að éta hálsbrjóstsykur og dreka sítrónute með hunangi í. En hún vill athuga þetta þar sem hann er búinn að vera svo lengi og þrálátur hóstinn. og það kemur stundum smá slím. svo nú er ég komin á sýklalyf Jibbý.

Hafrún Ásta

9 svör

  1. Hún á ammmmæli í dag tralala, til hamingju með daginn ljúfust og njóttu hans í botn;-) Vona að strákarnir þínir dekri við þig á alla kanta og þú fáir marga stóra pakka…Knús og mikið kram frá mér og mínum!

  2. til hamingju með daginn :)

  3. Til hamingju með daginn ljúfann. Hafðu það yndislegt í dag!!

  4. Til hamingju med afmaelid. Thu ert ‘loksins’ buin ad na mer. ha ha ha.

    Thu ert svakalega lik Hafteini a thessari mynd ;)

  5. Hæ hæ til hamingju með daginn og þú lítur bara mjög vel út elskan, keikó er bara yrði bara öfunsjúkur hehe.
    Stórt knús frá okkur hérna á Ak ( Gunni er farinn að syngja hérna fyrir þig, þú ættir að heyra í honum, þetta er svona Marlyn útgáfa frekar afbökuð samt haha) Kossar og knús :o )

  6. Leyðu mér að geta hann syngur ekki Hafrún heldur H****

  7. Til hamingju með daginn elsku Hafrún.

  8. takk fyrir allar kveðjurnar. Búin að fá pakka frá strákunum mínum og Sigga. tvo geisladiska sem mig langaði í og föndurdót … Æðislegt alveg. Er svo að fara út að borða með strákunum mínum og mömmu og pabba.

  9. Til hamingju með daginn og líka afmæliskveðjur til Hafsteins frá okkur.
    kv Vala og co

Skildu eftir svar