en á móti eru engir alvöru verkir svo varla kemur skvísan í dag … Oh jæja dagurinn er svo sem ekki búinn. En svo kannski langaði henni ekki að fæðast í svona óveðri… Hver veit… Annars er starfsdagur í leikskólanum svo Heiðmar Máni er heima svo kannski best að hún komi ekki í dag. Er [...]
Archive for nóvember, 2007
30. nóv er komin
Posted in Lífið, fjölskylda on föstudagur, nóvember 30, 2007 | 13 ummæli »
29. nóv
Posted in Lífið, fjölskylda on fimmtudagur, nóvember 29, 2007 | 7 ummæli »
Lélegir titlar á færslum sökum hugmyndaleysis. En annars er allt við það sama hérna… Ég stefni enn á 30. nóvember og það er bara á morgun er farin að finna fyrir pínu verkjum en það gæti verið þannig lengi svo hver veit… Var að klára að föndra jólakortin held ég sé búin gæti verið eitthvað [...]
28. nóv …
Posted in Góðir vinir, Lífið, fjölskylda on miðvikudagur, nóvember 28, 2007 | 7 ummæli »
Og ekkert að gerast … En ég kíkti til hennar Lindu í heimsókn. Kom úr þeirri heimsókn með 5 poka af stelpufötum aðallega í stærðum sem koma eftir það sem ég er með núna. Vantar ekki örlætið enda er ég núna með helling sem kemur frá Önnu Jóhönnu. Allir svo næs. En daman er nú [...]
Detti mér allar…
Posted in Lífið, músík on mánudagur, nóvember 26, 2007 | 10 ummæli »
dauðar lýs af höfði… Rás 2 er að spila Battery með Metallica… hélt ég ætti ekki eftir að heyra það á Rás 2 (p.s. er með kveikt á sjónvarpinu og þar sem engin dagskrá er er þetta bara rás 2…)
Hafrún Ásta með bumbu út í loftið og Metallica í eyrunum. hehe
Ég vissi það …
Posted in Lífið, fjölskylda, grín on mánudagur, nóvember 26, 2007 | 5 ummæli »
fann þetta á mbl.is http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1305193 Þetta hlaut að vera vitleysa…
Að öðru Hafsteinn er veikur ennþá, hann var veikur í gær og er enn. Enda vil ég alls ekki að hann fari svona kvefaður í sundkennslu. Vonandi fer hann að jafna sig greyið svo vont að hósta svona þurrt. Ef þetta fer ekki að lagast fer ég [...]
Nóg að gera…
Posted in fjölskylda on Sunnudagur, nóvember 25, 2007 | 1 ummæli »
Þessa helgi…
Fórum á Hótel Örk á jólahlaðborð og það var fínt að vísu fannst mér hangikjötið salt og og kalkúnninn ekki nógu góður. En það var margt annað þarna sem var ljúffengt. Gistum þar eina nótt og brunuðum svo í bæinn beint til mömmu og pabba.
Þar var skorið laufabrauð með fullt af frábæru fólki. Skornar [...]
froskar eða prinsar.
Posted in grín on miðvikudagur, nóvember 21, 2007 | 5 ummæli »
Þú fellur fyrir frinsum (froskur + prins).
Sé karlkynið flokkað í prinsa, froska, proska og frinsa leikur enginn vafi á hvaða manngerð/dýrategund þú fellur fyrir. Þú laðast að frinsum. Frinsinn líkist í flestu froskinum. Hann sýnir sjaldan rómantíska tilhneigð og getur átt það til að vera ansi óhugulsamurr. Láttu þér ekki bregða þótt frinsinn gleymi afmælisdeginum [...]
Ég skal segja ykkur það …
Posted in Litlu vinir mínir, Lífið, fjölskylda on laugardagur, nóvember 17, 2007 | 9 ummæli »
Að nú má skvísan bara fara að koma … Ekki að ég ætlaði ekki að fara bíða strax sko en bumban er orðin 123 cm … Eruð þið ekki að grínast? Að vísu erum við að fara á jólahlaðborð næstu helgi og að gera laufabrauð líka næstu helgi svo hún ætti eiginlega að koma eftir [...]
Frænkuhittingur og krílin.
Posted in Lífið on föstudagur, nóvember 16, 2007 | 2 ummæli »
Fór í gær að hitta frænkur mínar þær Nínu, Maríu og Guðlaugu. Það er alltof langt frá því að við hittumst síðast. Með í hittingnum voru auðvitað litu frændsystkinin mín krúttlegu
Frá stærsta til minnsta; Bjarki Tómas 5 mánaða, Jón Emil 4 mánaða og Lilja Rós 6 vikna.
Algjör krútt og rosa gott að knúsa þau [...]
Draumfarir
Posted in Lífið, draumar on miðvikudagur, nóvember 14, 2007 | 7 ummæli »
Venjulega dreymir mig mikið en það eykst á meðgöngu sérstaklega á fyrstu 3 mánuðunum og síðustu 3. Þó hafa þeir verið mjög miklir núna undanfarið. Oft dreymir mig tvo drauma yfir nóttina einn hvoru megin við pissuferðina. Um daginn dreymdi mig að ég færi á útitónleika með Metallica hér á Íslandi og á eftir sat [...]