Lélegur bloggari þessa dagana teflonhúðaði heilinn minn man ekkert núna.
Hafsteinn plumar sig vel á leiklistarnámskeiðinu og er þetta ekta eitthvað fyrir hann. Svo fara þeir feðgar allir 3 í bíó eftir hádegi. Held þeir ætli á rottumyndina “Rattatouie” >o< Svo fékk ég 3 boðsmiða á Gosa í næstu viku og þá fá þeir feðgar að fara í leikhús bara stuð.
Ég já ég á eitthvað erfitt með að sofa almennilega orðið á nóttinni sem er eflaust eðlilegt á þessu stigi. að vísu dreymdi mig undarlega í nótt. mig dreymdi að Siggi væri líka óléttur og við værum að fara í sónar til að sjá hversu langt hann væri genginn og svona. Og hann var komin 4-5 mánuði eða meira. hlýtur að vera meira því hann átti að fara í keisara þegar ég væri búin að eiga. Ég veit algjört rugl og Siggi hló bara þegar ég sagði honum þetta.
Ég er enn að vinna hálfan daginn og held ég haldi mig við það allavega út október sjáum til hvort ég verði líka hálfan nóvember. Fer í mæðraskoðun á þriðjudaginn og sjáum hvað hún segir gott.
Daman spriklar kát og sæl og bumban stækkar einhver ósköp. Líður eins og þetta sé sundlaug í ólymimpíustærð með vatnsrennibraut og stökkpalli hehe. Hef ekki tekið neinar bumbumyndir nýlega svo slíku er ekki fyrir að fara en þið getið vel ímyndað ykkur strandaðan hval og það er ekki svo fjarri lagi.
Hafrún Ásta kveður í bili. Vonandi ekki svona lögnu bili í þetta sinn. Hehe
p.s. glöggir lesendur sjá að útliti síðunnar hefur verið breytt var orðin leið á hinu.
Ætli Siggi gangi með stelpu eða strák…..
hvernig fannst þeim rottumyndin? Er að spá að fara á laugardaginn með Patrik Þór, Leifur verður sennilega að vinna
Var uppselt fóru með pabba sinn á Shrek 3 hann var ekki búinn að sjá hana. Svo enn eiga þeir rottumyndina eftir.