tvöfalt afmæli búið

Og bakið líka hehehe. Nei í alvöru takk öll sem voruð með okkur hér í gær þetta var frábær dagur og strákarnir nutu sín í botn. Þó íbúðin væri pakkfull og varla pláss að finna í viðbót fannst okkur æði að fá ykkur í heimsókn.

Set fljótlega myndir inn á barnalandssíðuna þeirra.

Hotmailið mitt dó og þar af leiðandi líka msnið mitt veit ekki afhverju en er komin með nýtt svo ef ég hef ekki þegar addað ykkur eftir minni. Sem er stopult þessa dagana þrátt fyrir að ég taki omega3 töflur aukalega. þá er það nýja hafrunasta hja hotmail.com og þið megið adda mér svo ég geti verið í sambandi við ykkur þið frábæra fólk.

Annars er lítið að frétta hef að vísu geta horft á læsta stöð 2, nú 2 daga í röð sem ég skil ekki þar sem ég hef ekki greitt fyrir hana. En veit um greiðendur sem hafa lent í að lenda í veseni með sína áskrift ekki alveg fair.

Kveð í bili, Hafrún Ásta sem er svo heppin að eiga frábæra fjölskyldu og vini.

7 svör

  1. Aftur til lukku með drengina ;) Og ég er að reyna að rífa mig upp úr andleysinu og þú ert hér með “klukkuð”…(eða klikkuð )
    1. Ef þú værir ofurhetja, hvað væri nafnið og hverjir væru hæfileikarnir?

    2. Ef þú ætlaðir að skrifa bók, um hvað væri hún?

    3. Á hvaða tíma sögunnar hefðir þú helst viljað lifað?

    4. Hvaða frægri persónu hefur þér verið líkt við?

    5. Hvaða dýr myndir þú helst vilja vera?

    Hlakka til að lesa svörin þín elsku vinkona ;)

  2. Takk, kærlega fyrir mig, þetta var frábært :)

  3. hehe Anna mín overdosaðir þú ekki á afmælum um helgina?

  4. Flott. Að heyra það. Já, en hvernig fór hotmailið þitt að deyja???? En ég er búin að adda þig inn… Og vonandi veistu hver ég er. ;)

    En við þökkum innilega fyrir okkur og það var mjög gaman að koma í afmælið..:D:D:D

  5. Ég þarf að skella þér á listann :) !
    En ég var ekkert látin vita af þessu afmæli fyrr en á sunnudeginum kl 1 og þá var ég búin að gera ráð fyrir að eiga allan daginn frían og átti eftir allt heimanámið mitt svo ég komst ekki :/ Mjög fúlt!
    Til hamingju með skottin 2 :p

  6. Hæ flotta fjölskylda sem fer stækkandi mjög fljótlega ;o)
    Bara senda smá kveðju frá okkur á AK og til hamingju með guttana ;o)
    Linda ,Gunni og gormarnir

  7. Hæ elskan og innilega til hamingju með drengina þína :)
    Sjáumst bráðlega.
    Karen Bahama mama :þ

Skildu eftir svar