Jamm sumarbústaðaferðin með saumaklúbbnum var æði. Þrátt fyrir að ég hafi reynt að detta fram úr um miðja nótt á leið minni á klósettið. Góður matur, góður félagsskapur og skemmtileg handavinna.
Annars er ég að venjast þessum hálfa vinnudegi og Heiðmar Máni er heima með hita. Geri ráð fyrir að stubbur verði heima á morgun
Á morgun er svo sykurþolspróf sem er víst ekkert frábærlega gaman fasta frá kl.22 í kvöld og mæta svo eldsnemma niður eftir (kl.8) og drekka eitthvað sull og svo bíða í 2 tíma og svo tala við lækni … en ég verð ábyggilega banhungruð þegar þetta próf verður búið. Þetta tekur allan vinnudaginn minn (hefði sennilega mætt kl.11 og unnið til kl.15 ef ekki hefði verið fyrir lasintes.
Hafrún Ásta kveður í bili hef ekkert merkilegra að segja.
Flokkað undir: Allt í kross saumaklúbburinn, Góðir vinir, Lífið
Úff hef farið í svona próf og það er leiðinlegt að segja það en það er ekkert gaman

Gott að þú ert að hlýða og farin að vinna minna. Verður að passa uppá Hafrúnu það er bara til ein og við viljum hafa hana heila og hrausta
Hafðu það gott og farðu vel með þig!!
Þetta próf var ekki eins slæmt og ég átti von á. Var að vísu eins og að drekka candy floss en að því liðnu gekk þetta bara ágætlega fyrir sig las í bók og dottaði og svona fékk mér svo banana þegar þetta var búið … Verst hvað manni fannst maður þreyttur svona án morgunmats.
þú getur nú rölt kannski yfir einhvern daginn fyrst að þú ert komin í 50%. þ.e. ef þú ert ekki að nota tímann í að leggja þig. Getur komið og æft þig smá að vera með stelpu
Af hverju þurftiru að fara í svona sykurpróf? Fær maður útúr því strax?
já ég fékk út úr því strax. Veit ekki afhverju ég fór í því bara ljósan og læknirinn ákváðu það. Já þegar ég er búin að vinna upp eitthvað af þessari hvíld sem vantaði upp á kíkji ég pottþétt yfir.
flott að það kom allt gott út úr sykulþolinu
þetta gæti tengst bjúgmyndun og e-ð þannig hjá þér, bara verið að útiloka meðgöngusykursýki myndi ég giska á
Ég öfunda þig svo innilega ekki að hafa þurft að drekka þetta þó ég hafi ekki þurft þess á minni meðgöngu en þá sá ég meinatækninn vera að blanda þetta stundum, ekki neitt svakalega lystugt