jæja gott fólk brjálað að gera.
Í fyrsta lagi er ég að fá stöðuhækkun hjá Kaupás. Ég hafði áður fengið ábyrgðarmeiri verkefni og fína launahækkun fyrr á árinu eða í mars þegar ég hafði unnið í 3 mánuði. Og svo bættist alltaf við verkefni þar til ég var hreinlega að drukna í verkefnum. Svo segja má að þetta sé mín önnu stöðuhækkun. Ég byrjaði að vinna þar 3 janúar á þessu ári. Ég get ekki sagt að ég hafi átt von á þessu þegar ég byrjaði þar. En nú er ég að þjálfa stelpu upp í að taka við tímafrekum verkefnum sem ég hef haft undir höndum allan tímann og þegar það er komið sem ætti að vera fljótlega því þetta er alveg kýrskýr stelpa. Þá get ég einbeitt mér að hinum verkefnum mínum og aðstoðað við það nýja sem kemur inn að hluta. Já já alltaf nýtt ;o)
Þessum titli innkaupastjóri rekstrarvöru og aðstoð við innkaupastjórn sérvöru fylgir svo auðvitað launahækkun svipað stór og síðast, ef ekki stærri.
Já svo var jólahlaðborð með deildinni minni í gær og það var nú aldeilis gaman þar mikið kjaftað og mikið hlegið. Farið var á Sigga Hall á Óðinsvé og var bara fínn matur þó þjónustum hefði mátt vera betri. En maður getur ekki beðið um allt. Þetta var makalaust en ég var stillt drakk ekki og fór heim um miðnætti.
Afhverju í ósköpunum skildi ég hafa gert það. Jú vegna þess að ég þurfti að vakna klukkan 7:45 því Siggi fór að vinna og strákarnir vöknuðuð þá. Svo sýningu í skólanum þar sem krakkarnir sýna okkur vinnu síðustu viku á þema dögum. Þetta verður voða gaman. En ég er þreytt og langar best að leggja mig núna en ég fæ mér bara einn eftir sýninguna ef ég glaðvakna ekki fram á kvöld við að fara út.
Já svo er það blessuð öxlin sem virðist ekki bara getað verið sæmileg. hún fer í kerfi ef stólinn í vinnunni er ekki rétt stilltur eða skjárinn eða borðið eða eitthvað og ég er bakk þetta er óþolandi og á nákvæmlega stað og eftir áreksturinn forðum svo þetta er bein tenging.
Hafrún Ásta sem er samt bara ánægð með lífið.
Ein hugmynd sem ég fékk frá Ernu Huld minni Ef þið skrifið hugmynd í comment skal ég blogga um það … eða reyna fer eftir hvað ykkur dettur í hug ;o)
Flotta síðan !!!! Ég mundi vilja heyra um hvernig ofurhetja þú gætir verið , hvaða krafta og svo framvegis
já Erna ég lofa að blogga um það þegar ég er búin að hugsa um þetta pínu.
Til hamingju með stöðuhækkunina!
Góð!
takk takk
Til hamingju með stöðuhækkunina:)